Hemmi&SiggaDögg

og nú á Íslandi…

Flower

Flutningar

jæja. netlaus en flutt í höfuðborgina.

við hjónakorn höfum ákveðið að setja síðuna í hlé…ótímabundið.

þar sem ég er að reyna skrifa meistararitgerð sem og síðuna mína og halda vinskap við fólkið mitt hinu megin á hnettinum þá eru lyklaslögin fá sem eftir eru.

en nú reynir bara á gamaldagssamskipti, tölvupóst og símtöl!

gaman að því, er það ekki bara?

nema auðvitað þig langi að gerast áskrifandi að blogginu fyrir 1000 kr á mánuði og þá skal ég lofa færslu þriðja hvern dag, tilíþað?

annars er þetta tregablandin ákvörðun því mér finnst gaman að blogga og mikið brúðkaupsplan framundan og svona… en svona er þetta víst.

knús frá okkur báðum og takk kærlega fyrir innlitið og samfylgdina undanfarin 2 ár

Hemmi&SiggaDögg

Jólakort 2009

Kreppujól 2009.

Höfum ekki efni á því að láta prenta jólakortið fyrir 2009 því birtist það hérna.

Við óskum þér og fjölskyldu þinni gleðilegra jóla.

jolakort_litid

(smellið á myndina til að nálgast það)

Knús og kossar, Hemmi&SiggaDögg

afmæli hemma

já ég er að blogga!!!

omg ertu eflaust að hugsa núna, er það ekki?

sko það er eins gott að ég fái met í kommentum því að hugsunin um að hætta þessari síður verður æ tíðari þessa dagana.

hvað um það.

komin heim.

úff.

djöfulsins brjálæði!

við erum með aðsetur í Kef City í sérútbúnu skrifstofu/svefnherbergisrými. frá því við lentum þá hefur tíminn að mestu farið í vinnu og skóla og fjölskylduna. ég þurfti að klára tvö próf um leið og ég lenti svo að ekkert annað komst að en siðfræði og aðferðarfræði, mis skemmtilegt. það fyrsta sem ég gerði þegar prófunum var lokið var að fara í mjög gott slúður session með nokkrum velvöldum stúlkum. yndislegt alveg. svo var það bara vinna. og meiri vinna. það er ekki hægt að kvarta undan aðgerðaleysi á íslandi, ó nei. tíminn í perth þar sem kaffitíminn á svölunum var heilagur sem og sunnudagsgöngutúrinn er svo langt langt frá mér að það mætti halda það hafi verið líf í annarri vídd. ísland er ekki rólegur göngutúr eða þriggja stunda kaffibolli. nei. hér gerir fólk hluti og það helst marga, á hverjum degi. fólk í útlöndum er ekki svona framtaksglatt, ég er að segja þér það. þannig að. allir dagar eru skipulagðir útfrá könnun félagsvísindastofnunar eða snatti fyrir pabba. alls ekki svo slæmt en vissulega mjög mikið öðruvísi frá því sem við höfum vanist á þessu ári.

en þetta var nú einmitt það sem við söknuðum hvað mest. hringiðunnar. vina og fjölskyldu.

talandi um það, ég og hemmi er komin með nýja heilaga rútínu og það er morgun kaffibollinn á ísshúsastíg með særúnu frænku og nýjasta fjölskyldumeðliminum, Sindra Sólimann. ótrúlega gaman alltaf að koma til rauðhærðu fjölskyldunnar… en já. þó hjartað eigi sterkar rætur í keflavík þá leitar hugurinn samt til borgarinnar. rétt í þessu var hemmi að leggja á nýja leigusalann okkar. við erum komin með kot í reykjavíkinni, 101 nánar tiltekið. frá og með nýju ári 2010 þá hefjum við búskap í miðbænum. ahhhh.

kotið er lítið, afskaplega lítið, en ég á góðan tengdó sem ætlar að ikea-væða pleisið og nýta hvern einasta krók og kima. án gríns. þetta er svona ikea sýningarrými þar sem maður hugsar “vá hvað þau voru sniðug að troða öllu þessu inn í þetta litla rými!” þetta er svoleiðis. itsy bitsy teenie weenie! en ég er sannfærð um að við getum gert þetta kósí saman. hver man nú ekki eftir kósheitunum í 20 fm á Suðurgötunni? það var nú sérdeilis huggulegt og fólk vílaði ekki fyrir sér að koma í matarboð í plush sófanum… en já. þetta fer í sögubækurnar okkar “þegar við bjuggum í litlu þingholtsholunni”. ætli sú dvöl verði ekki það næsta sem við hjónaleysin komumst danmörku þar sem baðherbergið er í þeim stíl. gaman að segja frá því. en. þetta verður dokkúmenterað bak og fyrir og ætti í raun að vera innlit/útlit eða hús&híbýli verkefni en já. stay tuned. og meðan ég man. allt afgangs húsgagna dót er vel þegið. það er allavega bannað að henda einu né neinu án þess að hringja í okkur fyrst. hananú.

svo má nú ekki gleyma því að við áttum afmæli í vikunni!

hemmi er 09 des og dagurinn hann byrjaði ELDsnemma enda skráður í vinnu fyrir tengdafaðir sinn. það var ræs kl.6.10 með karmellusúrmjólk, kertaljósi og afmælissöng. en dagurinn bauð upp á dekur svo að dugnaður í morgunsárið var ekki jafn slæmt og það hljómar. eftir að hafa skilað af okkur verkefni dagsins þá kíktum við í morgunsundsprett í Grafarvogslaugina. þar fékk hemmi sína “fyrstu” afmælisgjöf dagsins. mér hafði tekist að lauma nýrri líkamssápu+kremi frá L´Occitané í sundtöskuna svo að minn maður fékk pakkinn sinn á leið í sturtu með afmæliskveðju ritaða á málingarlímband. vakti óneitanlega mikla lukku.

eftir afslappandi sundferð þá gæddum við okkur á kaffibolla hjá Kaffismiðjunni og heimabakaðri espresso brownies með mars kremi sem ég hafði bakað kvöldinu áður.

það var nefnilega þó nokkuð pússl að plana daginn hans hemma því við erum ALLTAF saman. ALLTAF. ég náði að baka því særún frænka bað mig að passa fyrir sig í tvo tíma. ég var svo heppin að amma&afi skyldu hafa heimsótt mig þegar ég var að passa svo að amma gaf Sindra að borða og afi hafði ofan af Patrek á meðan ég kláraði að hræra í kökuna. ég er eitthvað svo nojuð með Sindra litla og að hann kafni eða eitthvað þannig ég var alltaf að tjekka á honum og að reyna segja Patreki stóra bróður hans sögu á sama tíma. og auðvitað að reyna fylgja uppskrift og hræra í köku. og graut handa Sindra. ég er ágæt í að samhæfa en bara ekki svona góð og því var heimsókn ömmu og afa einkar vel þegin.

hvað um það. Kaffismiðjan var svo elskuleg að gefa mér leyfi til að koma með mína eigin köku á þeirra ágætis kaffihús svo þetta small skemmtilega saman og setti enn persónulegri stíl á morgunkaffibollann.

þá tókum við smá miðbæjargöngutúr með viðkomu í fallegu búðinni Kokku. jiminn. ég komst að því að þau gera registerað tilvonandi brúðhjón. konan bað mig um að vera tímanlega. ég bað hana vel að lifa og spurði hvort hún vildi ekki bara grípa með sér blað og penna og byrja skrifa niður. henni fannst í lagi að bíða fram á vor. nú jæja þá en ég var alveg til…

svo þurftum við aðeins að bruna til kefl city og skila bílnum og ná í annan til að fara aftur í bæinn og byrja hinn eiginlega afmælisdag.

ég laug að hemma að við værum að fara með veislu í bæinn því ég hafði troðið risa hvítum kassa með okkur með allskyns kræsingum og hann þarfnaðist útskýringa. nú keyri ég helst aldrei þar sem akstur virkar eins og svefnlyf á mig en ég gerðist persónulegur bílstjóri hemma þennan dag. enda bara við hæfi þegar verið er að plana lúxus annars vegar og það á budgeti.

ég brunaði með hemma á vonarstræti 3 þar sem á móti honum tók Helgi Svavar Helgason, Elsu ægtemand og trommari með meiru. Hermann fór í sinn fyrsta trommutíma! Hann hafði misst það útúr sér í sumar að hann eina hljóðfærið sem hann langaði til að prufa að læra á væri trommur svo ég fór af stað….

Helgi var að sjálfsögðu yndislegur og kveikti þennan líka litla áhuga í mínum manni sem og að gefa honum trommukjuða. Eftir dágóða stund af samhæfingu þá gæddu strákarnir sér á léttsteiktri hrefnu ala pabbi á soho.

á meðan þeir trommuðu þá braut ég allar umferðareglur og brunaði upp á Nordica til að skreyta hótelherbergið okkar. oh já. fólkið á budget sem á ENGAN pening fékk dýrindis gjafabréf frá ömmu möllu & afa gauja í gistingu á Hilton hótelinu Nordica.. very nice!

ég hafði nappað einhverjum massívum silfur fimm arma kertastjökum frá pabba sem og þúsund sprittkertum og skundaði með risa koffort í eftirdragi upp á herbergi í rómantískum skreytingarhug. Eftir að hafa dreift kertum útum allt herbergið og baðherbergið þá raðaði ég súkkulaði húðuðum jarðaberjum af kostgæfni á bakka sem og ferskum ananas og hráskinku á melónu og rúkkóla beði. þetta var hemmi minn og það var ekkert til sparað! (þó var budgetið 5000 kr fyrir daginn) ég stillti Bollingernum upp við gothic kertastjakann og skundaði að ná í strákinn. ég pirraðist yfir að hafa gleymt rauðu rósunum en fattaði að það var meira fyrir mig heldur en hann svo það var kannski bara allt í lagi að sleppa þeim..

útúrgíraðan úr trommitíma splæsti ég á einn Tomma með öllu og bernaise og súkkulaðisjeik. namm.

kom stráknum aðeins niður á jörðina enda tími fyrir afslöppun framundan.

mig langaði að bjóða honum í spa en það var ekki raunhæfur möguleika fyrir budduna svo að heimagert ofur rómantískt kertaljósar & lífrænt kókosolíu siggu spa varð að duga. held það hafi bara skorað fleiri stig heldur en hitt spa-ið…

en já rólegheit&rómantík voru ráðandi í eftirmiðdeginu.

við skelltum svo í okkur nokkrum sushi bitum á Iðu og pældum í bókum því hemmi fékk ansi myndarlega afmælisgjöf frá tengdaforeldrum sínum.

ég var hraðlygin þennan dag svo ég laug aftur að honum og dró hann á einhverja danska krá þar sem samankomnir voru útvaldir konfektmolar úr vinhahópi hermanns. með stærsta jólabjórinn í þar tilgerðu glasi sat hemmi minn og kláraði afmælisdaginn sinn. umkringdur fólkinu sínu, gerist varla betra. ég sá meira að segja nýja hlið á hemma mínum..gaman að segja frá því! hann leynir svo á sér þessi elska. þessi rólyndismaður lék á alls oddi… enda dagurinn búinn að vera með eindæmum góður í alla staði.

sæll og glaður í heitu baði með kampavín í annarri og kertaljós allt um kring þá þakkaði hemmi fyrir sinn afmælisdag og óskaði mér til hamingju með minn…

meira um hann seinna, þetta er orðið svo langt hjá mér.

siggadögg

- sem elskar afmæli meira en regnbogabirta elskar liti-

hemmiáhlemmi…

Fórum í bæinn í gær.

Það er alveg magnað þegar við förum svona í bæinn því þá er eins og dagurinn sé klipptur út úr „filófaxinu“ hans Donalds Trump. Dagurinn er skipulagður útí eitt, hver hittingur er c.a. 1- 1½ klst pr. persóna svo er það næsti… Geggjað svona skipulag!

Ég lenti hins vegar í skemmtilegri lífsreynslu í gær, ég nefnilega gleymdi símanum mínum í Kef City. Þegar við Sigga vorum kominn í byen skildu leiðir, hún með stífa dagskrá og ég með aðeins lausari dagskrá. Ég var á rölti á Ingólfstorgi og gat ekki fyrir mitt litla lífið munað hvar hægt væri að hringja úr almenningssíma. Svo það endaði með því að ég rölti mér uppá Hlemm og fann þar tíkalla síma sem ætti eiginlega að heita fimmtíukallasími og náði á Siggu mína sem kom og sótti mig á Hlemm. Hefði ekki trúað því hvað þessi stutti tími án síma í borg óttans var „erfiður“.

Hemmi á Hlemmi

Hemmi á Hlemmi

Jæja…

Þanngað til næst!

09.10.2010 Anyone?

Sorry Arna við erum ekki alveg hætt að blogga… það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá okkur síðan við komum heim, því hefur ekki gefist tími til að setja inn nýja færslu, plús kerfið okkar var með smá mótþróa sem ég er nú búinn að laga. Biðst velvirðingar á þessu öllu.

Hérna kemur allavega eitthvað.

Ferðalagið heim gekk vel fyrir sig. Flugum frá Perth til Sydney > Sydney til Los Angeles > Los Angeles til Boston í gegnum Milwaukee > og svo Boston til Kef. City þar sem við höldum heimili þessa stundina.

Frú Sigríður er að læra undir próf! Hún er reyndar ný búinn að skila inn heimaprófi og fer svo í próf í fyrramálið, eftir það ætti að vera hægt að ná í hana. (var búinn að skrifa þetta áður en WP – fór í klessu.) Update: Nú er Sigríður búin í prófum, til hamingju með það ástin mín!

Annars erum við hjú með verkefni á okkar könnu fyrir Félagsvísindastofnun HÍ og er það ansi tímafrekt. Annars tökum við að okkur öll verkefni sem gefa smá aur þannig ef þú lumar á einhverju ekki hika við að hafa samband.

Beverly Hills

Beverly Hills

Áttum góða daga í Los Angeles með góðum vinum!

Fallegir haustlitir í Boston

Fallegir haustlitir í Boston

Eiríka, ég er byrjaður að leggja fyrir svo ég get komið í haustlitaferð til þín við tækifæri! Ekki til að fara í búðir heldur til að slappa af og njóta haustlitana. Boston er ótrúlega falleg í haustlitum.

Hundur að hugsa sér gott til glóðarinnar...

Bangsi búinn að stela plássinu mínu og Sigríður tekur því fagnandi :)

Og nú til ÍSLANDS!

Fjarlægðin gerir fjöllin blá

Fjarlægðin gerir fjöllin blá

Gufuskálar á Reykjanesi... ekki vissi ég það...

Gufuskálar á Reykjanesi... ekki vissi ég það...

Ísland best í heimi!!!!

Ísland best í heimi!!!!

Ég ákvað að taka út niðurtalninguna í brúðkaupið því fólk var einfaldlega ekki að fatta dagsetninguna. Fyrir þá sem föttuðu þetta CONGRATS!

Dagsetningin er : 09.10.2010

Vill nota þetta tækifæri til að minna fólk á að Reykjanesbrautin er tvöföld og liggur í báðar áttir, einnig það eru kaffihús í Keflavík (hvern hefði grunað!)

Þanngað til næst.

Hemmi – sem er orðinn duglegri en Sigga að blogga

Ice Ice baby…

…All right stop collaborate and listen

Sorrý Arna við erum ekki hætt að blogga…

Við erum bara búin að vera svoldið busy eftir að við komum heim.

Eigum í smá vandræðum með WordPress-ið okkar.

Hemmi&Sigga í Hollywood

Hemmi&Sigga í Hollywood

Home is where the heart is…

… akkúrat núna í Boston.

Alltaf  gott að koma til hennar Eiríku frænku. Lítið að frétta af okkur annað en það að Íris tengdó, Marel Sólimann og Amma Agga voru mætt til Boston til að taka á móti okkur, það má með sanni segja að það hafi komið okkur á óvart. Við komum svo til fyrirheitna landsins á miðviku- eða fimmtudagsmorgun.

Frú Sigríður að „trick&treat-a“ as the "Holly Nun"

Frú Sigríður að „trick&treat-a“ as the "Holly Nun"

Læt fylgja nokkrar myndir frá Halloween hér í Boston.

Flottar skreytingar í USA

Flottar skreytingar í USA

Nunnan og Geimveran (a.k.a. Marel Sólimann)

Nunnan og Geimveran (a.k.a. Marel Sólimann)

Freddie Kruger og Geimveran

Freddie Kruger og Geimveran

Systkinin fyrirframan velskreyt hús

Sigga & Marel

Það var ansi gott að hafa stóru systur til að „trick&treat-a“

Það var ansi gott að hafa stóru systur til að „trick&treat-a“

Það komu allskonar verur í heimsókn að sækja sér candy

Það komu allskonar verur í heimsókn að sækja sér candy

Sigga var dugleg að deila namminu

Sigga var dugleg að deila namminu

Sumar voru ansi litlar í sér og þorðu varla að spyrja

Sumar voru ansi litlar í sér og þorðu varla að spyrja

Gaui vinur minn er fluttur til Boston til þess að læra. Hittum hann og vini hans bakkabræðurna Benna&Bjarna. Fengum okkur Sushi og kíktum svo á lífið í Boston… Það er ekki mikið í líf í Boston þannig ég og Sigga röltum okkur aðeins um með myndavélina til þessa mynda það sem fyrir augum okkar varð.

Íslenskir útrásarvíkingar og Nunnan

Íslenskir útrásarvíkingar og Nunnan

Gaui Hauks aðalspaðinn

Gaui Hauks aðalspaðinn

Cupcake

Cupcake

Sigga vakti mikla lukku...

Sigga vakti mikla lukku...

Jæja…

Þá er þetta komið núna.

Þangað til næsta

Hemmi

Á ferð og flugi…

PER-SYD-LAX-ZML-BOS…

…svo KEFLAVIK INTL. AIRPORT!

Við erum búin að vera busy að skoða okkur um í heimsborgum síðustu daga.

Hérna eru nokkrar myndir. Lengra blogg kemur við fyrsta tækifæri.

SYD-LA-1

Sydney Harbour Bridge

SYD-LA-2

Sigga sæta undir Harbour bridge og Óperuhúsið í baksýn

SYD-LA-3

Sydney Opera House

SYD-LA-4

OutAndAbout in Sydney

Fireworks in Sydney

Fireworks in Sydney

Sydney Harbour Bridge

Sydney Harbour Bridge

Síðasta máltíðin í Ástralíu... svo 13 tíma flug til LAX

Síðasta máltíðin í Ástralíu... svo 13 tíma flug til LAX

Venice beach - Los Angeles

Venice beach - Los Angeles

SiggaDögg, Unnur, Snævar og Óttar chilling @ Venice beach

SiggaDögg, Unnur, Snævar og Óttar chilling @ Venice beach

Shadow LA

Shadow LA

Knús og kossar frá okkur og sjáumst bráðlega á Íslandi – Besta landi í HEIMI!!!

Hemmi

Seinustu dagarnir í Perth!

úff þvílík og önnur eins yndisleg vika!

við skyldum við ykkur í seinustu viku þegar ég var tekin í surprise gæsun!! oh my oh my hvað stelpurnar mínar hérna þekkja mig vel!! mér var boðið í High Tea á The Duxton hotel og þetta var ekkert smá posh (eins og írinn minn segir alltaf). Það var stjanað við okkur dömurnar og fékk ég mér kampavín og devonshire “muffu” með smjöri, sultu og rjóma, maður á víst að smyrja þær þannig.

IMG_2815Þannig að allar skólastelpurnar mínar mættu á svæðið og skáluðu og snæddum saman og allar voru þær uppá dressaðar og fínar..loveit!

Því næst settumst við nokkrar af mínum nánustu saman og skáluðum smá meira…

IMG_2820og ég komst að því að áfengisbölvunni minni hefur verið aflétt! ohhh já!

eftir að hafa skálað nokkuð oft og klárað hálfan jarðaberjaakur þá duttum við inn á Hula Bula bar sem er snilldar kokteilbar með svona Hawaii Tiki þema..

IMG_2839Þarna vorum við vel vökvaðar og endurvöktum gamla klassíska leikinn “ég hef aldrei”.. uffff. sem verðandi kynfræðingar þá var þetta ansi áhugaverður leikur og einn sá mest krassandi sem ég hef farið í..EVER! skulum bara orða það þannig að það sem var rætt þarna í tiger sófanum mun aldrei fara neitt lengra..hmmm..

En kvöldið endaði ekki þarna því við dömurnar fórum í smá vettvangsrannsókn á einn fínasta strippstaðinn hérna, The Voodoo lounge, þar sem við keyptum okkur Monopoly peninga og tippsuðum eins og enginn væri morgundagurinn! mjög áhugavert indeed og áttum einmitt gott spjall við nokkrar af stelpunum sem voru að súludansast.. kom mér mest á óvart að þær fóru alveg úr öllu! nema skónum auðvitað. en já, appelsínuhúð, tattú, bólur og hár, það var ekkert sílíkon eða fótósjopp, bara alvöru konur. kom skemmtilega á óvart.

Ég endaði svo á að rúlla inn heima og mér mætti hemmi sem hafði barist við moth á stærð við leðurblöku inni á baði og needless to say þá sigraði hemmi og marglitar slettur á baðherbergisveggnum sönnuðu það…

Í ögn ryðguðu ástandi skröltum við svo upp í the bush og fórum í hádegisverð til skólavinkonuminnar. Við fórum í bush göngutúr og viti menn, við sáum villtar kengúrur skoppa framhjá okkur, litla baby joey og móður! náttúran hérna er svo mögnuð, maður veit aldrei hverju maður má eiga vona á næst!

IMG_2847

Annars var þetta seinasta vikan mín í skólanum og mikið að gera í verkefnaskilum og þess háttar “gleði”. Við náðum stuttu piknikki með Candy fjölskyldunni þar sem við vorum kvödd með gott nesti fyrir allar flugleiðirnar, hemma til mikillar gleði :) Magnað hvað við höfum eignast marga góða vini hérna..og nú skilja leiðir en svona er þetta víst…

Á miðvikudaginn ákváðum við þó að sletta úr klaufunum og skella okkur í sjóferð til Rottnest sem er lítil eyja rétt fyrir utan Perth. Við ákváðum að það væri ekki seinna en vænna að sigla Swan River og reyna sjá eina eða tvær quoakka en það eru mini kengúrur  (reyndar skildar wallabys) með rottuhala, mega krúttlegt!

IMG_2866en já þær sémsagt skoppa útum alla eyjuna og eru í útrýmingarhættu! Jæks! ég myndi ekki kvarta að ef ég ætti eina svona sem gæludýr…

en við leigðum okkur hjól og hjóluðum hringinn í kringum eyjuna…

IMG_2862á leiðinni heim með bátnum þá sáum við höfrunga skoppa upp og niður og einn hvalur mætti á svæðið og lék listir sínar og hoppaði og skoppaði, okkur á bátnum til endalausrar ánægju (ég var reyndar rennandi blaut eftir þessa sjóferð þar sem við ákváðum að sitja úti til að ná að fylgjast með sjávardýrunum en það var vel þess virði)! enn og aftur, náttúran hér er mögnuð!

svo kom að því að kveðja og kveðjupartíið okkar héldum við á hverfispöbbnum..

_MG_8234

ég, ástralinn Helena og Guatemala Andrea (sexology dömur)

_MG_8239

ég og daninn Kim sem er maðurinn hennar Ásdísar íslendings

_MG_8240

Mark&Ally ástralir og María íslendingur

_MG_8245

ég og írinn minn Emily

_MG_8249

Andrea ástrali og kærastinn hennar Nathan, líka ástrali, og ég… (aftur með bakkusi! jiminn, ég er ekki lengur templari whúhú!!!)

_MG_8262

í mega spjalli er ég kvaddi gestina fögru

_MG_8274

sexology dömurnar og ástralska vinapar okkar í sófanum

_MG_8295

Rachel eigandi Forplay and Pleasure búðarinnar sem ég vann í og írinn minn

Það komust ekki alveg allir en þetta var samt yndislegt partí og virkilega gaman að ná að kveðja fólkið okkar almennilega!

En nú erum við á skrilljón að þrífa íbúðina og afþýða ísskápinn og annað skemmtilegt og svo erum við bara farin! Sydney í kvöld, LA á sunnudaginn og Boston á miðvikudaginn! Margar flugvélar og mikil gleði…

Óneitanlega komin smá ferðafiðrildi í okkur skötuhjú…Svo ég tali nú ekki um trick or treating hjá auntie..my oh my, nunnubúningurinn er kominn í töskuna :)

Við verðum með íslenska gsm hans hemma og svo verðum við með net í húsinu sem verum í í LA ef þú þarft að ná í okkur..

Kossar&Knús á Íslandinu eftir bara nokkra daga!!

_MG_8327

Shit! hvað er heitt…

… jább það er heitur vordagur hérna í WA 35° sól og blue sky!

Ég var að skutlast með skvísurnar Siggu, Emily og Jude á The Duxton hotel sem er 5 stjörnu lúxus hótel. Þar byrjar óvissuferðin hennar Siggu sem Emily og stelpurnar úr skólanum voru að skipuleggja fyrir Sigguna mína (hálfgerð gæsun skildist mér). Svona leit hotnessið mitt út!!! VávaVíva!

sigga_hotnes

Annars sit ég bara heima með Miller™ frænda og er dunda mér… Ég er að fara í stráka hitting á eftir… Meira svona kallahitting þar sem ég dreg meðalaldurinn niður um nokkra tugi! Ætlunin að hittast á Sheraton um 6:30 og fara svo á eitthvað skrall skilst mér. Ætli við skötuhjú skrifum ekki skýrslu um helgina að henni liðinni.

Á morgun förum við í lunch til hennar Maria sem er með Siggu í skólanum. Það verður eitthvað forvitnilegt!

Spjallaði við Gauja Hauks í Boston í gærkvöldi, það verða skemmtilegir endurfundir í Boston!

Annars allt gott að frétta af okkur.

Ein „óformleg“ könnun… Við skötuhjú vorum að spá í að setja bloggið okkur „On hold“ á meðan við búum á Íslandi hvernig líst ykkur á það? Pls leave a comment!

Þanngað til næst

Hemmi

- sem er að reyna að vera duglegri bloggari-